Æskuræktin 💪🏼

Æfingaaðstaða fyrir félagsmenn UMF Æskunnar

Æskuræktin er ný æfingaaðstaða á Svalbarðsströnd sem byggð hefur verið upp af kraftmiklum sjálfboðaliðum UMF Æskunnar.

Markmiðið er að bjóða félagsmönnum upp á góða og fjölbreytta aðstöðu til líkamsræktar í sínu nærumhverfi, þar sem hver og einn getur æft á sínum forsendum.

Aðstaðan er opin allan sólarhringinn og aðgangur er í gegnum snjalllás, svo þú getur mætt á þeim tíma sem hentar þér best.

Aðgangur og verð

29.900 kr. fyrir aðgangskort sem gildir til 31. ágúst 2027.

Aðgangur að Æskuræktinni er eingöngu fyrir félagsmenn UMF Æskunnar. Ef þú ert ekki þegar félagsmaður geturðu gengið í félagið samhliða skráningu. Árgjald félagsins er 5.000 kr.

Ungmenni 14–18 ára fá gjaldfrjálsan aðgang, 14-16 ára þurfa að æfa í fylgd fullorðins einstaklings með gilt aðgangskort.

Mörg stéttarfélög veita styrki til líkamsræktar og því hvetjum við þig til að kanna rétt þinn til endurgreiðslu.

Hvernig skrái ég mig?

Skráning fer fram á raektin.aeskan.com

Þú fyllir út skráningarformið, færð samning sendan til rafrænnar undirritunar og reikning í heimabanka. Að því loknu færðu aðgang að æfingaaðstöðunni í gegnum snjalllás.

Vertu með og nýtum þessa frábæru aðstöðu saman! ❤️