Æskuheimilið er heimavöllur félagsstarfs UMF Æskunnar – hlýlegt og fjölnota rými í endurbættu húsnæði gamla áhaldahússins á Svalbarðseyri.
Húsið var tekið í notkun árið 2024 og gegnir nú lykilhlutverki í dagskrá fyrir börn, ungmenni og fullorðna.
Þar fara fram pílukvöld, spilakvöld, viðburðir og eldri borgara kaffi – þar sem samfélagið hittist yfir góðum stundum.
Í húsinu er píluaðstaða með fjórum spjöldum, borð, stólar og snyrtiaðstaða. Rýmið hentar vel fyrir smærri hópa í rólegri samveru.
Vorið 2024 fékk UMF Æskan afhent gamla áhaldahúsið á Svalbarðseyri. Þar með hófst nýr kafli í sögu félagsins – og mikil vinna fram undan.
Sjálfboðaliðar tóku til óspilltra mála og lögð voru mörg handtök í að gera rýmið að hlýlegu og nothæfu félagsheimili. Þar á meðal voru málað, lagfærð gólf, bætt lýsing, sett inn húsgögn og útbúin glæsileg píluaðstaða með fjórum spjöldum.
Á nokkrum mánuðum breyttist húsnæðið úr kaldri geymslu í notalegt samfélagsrými – Æskuheimilið – sem nýtist nú í dagskrá félagsins og opið er einnig til leigu.