Lög Æskunnar síðan 1983
Lög Æskunnar síðan 1983
1. gr.
Félagið heitir Ungmennafélagið Æskan. Skammstafað U.M.F. Æskan.
2. gr.
Tilgangur félagsins er:
a) Að hjálpa æskulýðnum til aukins menningarþroska, og að sameina hreppsbúa yngri sem eldri til að rökræða þjóðnytja mál, og vinna að framgangi þeirra.
b) Að vinna að því að skapa heilbrigðan hugsunarhátt meðal æskulýðsins, í meðferð fjármuna sinna, verndun heilsunnar og fegrun og hreinsun móðurmálsins, svo og að vinna að útrýmingu skaðnautna í landinu.
c) Að stuðla að líkamlegu og andlegu heilbrigði félagsmanna með iðkun íþrótta og leikja, er henta hverju sinni.
3. gr.
Tilgangi sínum hugsar félagið sér að ná með því að halda uppi almennri félagsstarfssemi með fundahöldum, námskeiðshaldi, íþróttastarfsemi auk annarra tómstundastarfa er lýtur að þroska félagsmanna og heill lands og þjóðar. Ennfremur að standa að ýmsum framkvæmdum sem best þykja henta hverju sinni.
4. gr.
Félagi getur hver sá orðið, er sækir skriflega um inntöku í félagið, og gangast vill undir lög þess og lög U.M.S.E. Stjórn félagsins veitir mótttöku inngöngubeiðnum og skal formaður geta nýrra félaga á næsta fundi eftir inngöngu og skal það bókað í fundargerð. Unglingum innan tólf ára er heimil þátttaka í fundum, þó án atkvæðisréttar. Úrsögn úr félaginu skal tilkynnt formanni félagsins skriflega. Félagi er ekki hefur greitt ársgjald sitt í 3 ár eða lengur skal ekki færður á félagsskrá fyrr en hann hefur greitt skuld sína. Allir félagar í U.M.F. Æskunni hafa málfrelsi og tillögurétt á fundum félagsins.
5. gr.
Aðalfund skal halda í mars ár hvert, og skal þar kjósa stjórn, endurskoðendur og allar fastar nefndir fyrir komandi ár. Endurskoðaðir reikningar liðins árs skulu bornir upp til samþykktar. Reikningsár félagsins er 1. jan. til 31. des. Félagsstjórn skal á aðalfundi skýra frá starfi félagsins á liðnu ári. Aðalfundur er því aðeins lögmætur að minnst 1/4 félagsmanna mæti, og skal hann boðaður með minnst 5 daga fyrirvara. Sé aðalfundur eigi lögmætur, skal hann boðaður á ný með sama fyrirvara og telst hann þá lögmætur. Aðrir fundir félagins eru lögmætir ef mættir eru minnst 10 félagsmenn.
6. gr.
Aðalfundur ákveður á hverjum tíma árgjald félaga. Einnig skal aðalfundur ákveða æfingagjöld í boltaíþróttum, fyrir næstkomandi tímabil. Gjalddagi árgjalda skal vera 15. apríl ár hvert. Unglingar 12 ára og yngri greiða ekki árgjald. Unglingar 13 til 14 ára greiða helming árgjalds. Stjórn félagsins skal halda spjaldskrá yfir alla meðlimi félagsins og skal hún vera í vörslu gjaldkera.
7. gr.
Stjórn félagsins skipa 5 menn, formaður, gjaldkeri, ritari, varaformaður og varagjaldkeri. Kosning stjórnar skal vera þannig háttað að leita skal eftir uppástungu um formann og gjaldkera og síðan kosið leynilegri kosningu um þá sem stungið var uppá. Sami háttur skal hafður um kosningu þeirra þriggja sem til viðbótar eru í stjórn. Skipta þeir síðan með sér verkum í samráði við formann og gjaldkera. Þá skal kjósa 2 menn sem endurskoðendur. Formaður er framkvæmdastjóri félagsins, nema stjórnin ráði sér sérstakan framkvæmdastjóra. Framkvæmdastjóri hefur rétt til að sitja stjórnarfundi.
8. gr.
Formaður sér um fundarboðun, dagsskrá og stjórnar fundum, eða tilnefnir einhvern til þess. Gjaldkeri sér um dagleg fjárútlát, sér um útborganir eftir tilvísun formanns og heldur glögga reikninga yfir eignir þess, tekjur og gjöld. Glögg skilagrein skal fylgja hverjum tekjulið, og kvittanir útborgunum. Allir reikningar skulu færðir í sérstaka bók. Á aðalfundi leggur gjaldkeri fram endurskoðaða reikninga til samþykktar. Skulu athugasemdir endurskoðenda og svör gjaldkera fylgja. Ritari skrifar fundargerðir, sér um bréfaskriftir fyrir hönd félagsins svo og aðra pappírsvinnu og skýrslugerð í samráði við formann. Varaformaður og varagjaldkeri skulu vinna að ýmsum stjórnarstörfum, eftir því sem við verður komið, og leitast við að vera viðbúnir að taka við aðalstöðum í forföllum aðalmanna. Stjórnin velur fulltrúa til að mæta fyrir hönd félagsins þar sem við á. Heimilt er að skipa nefndir til sérstakra verkefna.
9. gr.
Brot gegn lögum þessum og stefnuskrá félagsins skal stjórnin taka til úrskurðar. Endurtekin brot varða brottrekstri úr félaginu.
10. gr.
Engu má breyta í lögum þessum nema á aðalfundi með samþykki 2/3 hluta greiddra atkvæða. Greini þessi lög á við lög U.M.F.Í. eru sambandslögin réttari.
11. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi er þau hafa verið samþykkt á aðalfundi félagins, og undirrituð af stjórn þess. Með lögum þessum eru úr gildi numin öll eldri lög félagsins.
12. gr.
Leysist félagið upp renni eignir þess til þess félags í sveitinn, eða síðar verður stofnað, með eins líkum stefnumálum og tilgangi og frekast verður. Vörslu eignanna og afhendingu, eftir að skilanefnd hefur lokið störfum, annist hreppsnefnd Svalbarðsstrandarhrepps.
Svalbarðsströnd 30. mars 1983