Starfið okkar
Æskan stendur fyrir fjölbreyttu, gjaldfrjálsu starfi fyrir börn, ungmenni og fullorðna í samfélaginu okkar. Við leggjum áherslu á þátttöku, hreyfingu, samveru og gleði – allt byggt á sjálfboðastarfi og krafti heimafólks.
Dagskráin okkar er síbreytileg og mótast af áhuga og frumkvæði íbúanna sjálfra. Meðal þess sem er í boði eru:
Hlaupaæfingar
Blakæfingar
Píluæfingar og kvöld
Spilakvöld, kviss og opnir viðburðir
Tímabundin námskeið og fræðsla
Við erum stöðugt að leita leiða til að bæta starfið og gera það fjölbreyttara.
Ef þú ert með hugmynd að nýju námskeiði, viðburði, fyrirlestri eða öðru sem gæti átt heima í starfi Æskunnar – ekki hika við að hafa samband!
📧 Sendu okkur línu á aeskan@umse.is